Þrot
Kvikmynd
Drama, Spenna
2023
Leikstjóri
Grunsamlegt andlát skekur smábæjarsamfélagið á Hvolsvelli og lífi einmana sendilsins Rögnu er umturnað þegar hálfbróðir hennar hverfur í kjölfar atviksins.
Þrot var fyrsta myndin í fullri lengd sem Heimir leikstýrði og skrifaði. Fyrir myndina hlaut Heimir tvær Eddu-tilnefningar árið 2023, fyrir bestu leikstjórn og besta handrit.
Leikarar: Bára Lind Þórarinsdóttir, Bjarni Snæbjörnsson, Anna Hafþórsdóttir, Pálmi Gestsson, Guðrún S. Gísladóttir, Silja Rós Ragnarsdóttir, Hákon Jóhannesson & Tómas Howser
Stjórn kvikmyndatöku: Nicole Goode
Framleiðslufyrirtæki: Stepanska Films
Fróðleiksmoli
Heimir lét húðflúra titilinn “Þrot” á sig löngu áður en tökur fóru fram. Þetta var gert til þess að gulltryggja að myndin yrði til enda vill enginn vera með samhengislaust “Þrot” á bringunni sinni.