
Heimir Bjarnason
Kvikmyndagerð hefur heltekið Heimi alveg frá því hann gerði sína fyrstu stuttmynd, þá 10 ára gamall. Hann sérhæfði sig í leikstjórn í Prague Film School og útskrifaðist þaðan árið 2016.
Þrot var fyrsta mynd Heimis í fullri lengd sem hann leikstýrði og skrifaði. Fyrir myndina hlaut Heimir tvær Eddu-tilnefningar árið 2023, fyrir bestu leikstjórn og besta handrit. Heimir er að vinna í næsta handriti en þar á milli vinnur hann við gerð heimildaefnis og auglýsinga.
Sem framleiðandi hefur Heimir komið að sjónvarpsþáttunum Flamingo Bar ásamt kvikmyndunum It Hatched og Þrot. Heimir er einnig framleiðandi kvikmyndarinnar Dansandi Línur sem er væntanleg á næstunni.
Heimir er reynslumikill klippari og má þar nefna verkefni eins og uppistand Ara Eldjárns á Netflix, heimildaþættina Systraslagur, skemmtiþættina Bannað að hlæja og Steinda Con ásamt verðlaunaþáttaröðinni Stormur þar sem Heimir sat einnig í höfundateyminu.




